REYKJAVÍK FOLK FESTIVAL - KAFFI RÓSENBERG - LISTAMENN
NESI, SJANA OG HINAR KERLINGARNAR :Kristjana Stefánsdóttir söngur, Hannes Friðbjarnarson söngur og slagverk, Guðrún Gunnarsdóttir söngur, Andrea Gylfadóttir söngur, Elvar Friðriksson söngur, Pétur Örn Guðmundsson söngur, Stefán Örn Gunnlaugsson söngur, píanó og kassagítar, Ómar Guðjónsson gítar, Þorgrímur Jónsson bassi, og Stefán Már Magnússon gítar. Laugardaginn 13. mars klukkan 23:00
LJÓTU HÁLFVITARNIR: Þorgeir Tryggvason, Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Eggert Hilmarsson, Guðmundur Svafarsson, Snæbjörn Ragnarsson, og Baldur Ragnarsson. Hljóðfæraskipan er margvísleg og ekki gott að henda reiður á því hver leikur á hvað. Allir syngja þeir svo meira og minna. Ljótu hálfvitarnir eru upprunnir úr Þingeyjasýslum og taka sig mátulega hátíðlega. Sveitin hefur slegið í gegn, og svo eru meðlimir hennar þekktir fyrir afburða greind. Föstudaginn 12 . mars klukkan 24:00 http://www.ljotuhalfvitarnir.is
GUITAR ISLANCIO: Björn Thoroddsen gítar, Hjörtur Steinarsson gítar og Jón Rafnsson bassi. Guitar Islancio leikur jazzkennda þjóðlagatónlist og þá einkum leita þeir í smiðjur gamalla íslenskra þjóðlaga, og gefa þeim nýjar víddir. Guitar Islancio er vel þekkt víða um heim, enda hafa þeir félagar leikið í nokkrum heimsálfum og hvarvetna hlotið lof. Ungur og mjög efnilegur gítarleikari, Hjörtur Steinarsson, hefur tekið sæti Gunnars Þórðarsonar í tríóinu. Laugardaginn 13. mars klukkan 21:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
SNIGLABANDIÐ- ÞJÓÐLAGADEILD: Björgvin Ploder, trommur og söngur, Pálmi Sigurhjartarson hljómborð, söngur, Einar Rúnarsson, hljómborð, harmonika,söngur, Skúli Gautason gítar, söngur, Þorgils Björgvinsson gítar, söngur, Friðþjófur Sigurðsson bassi og söngur. Sniglabandið er ein fjölhæfasta hljómsveit landsins og nægir að nefna beinar útsendingar sveitarinnar á Rás 2. Sniglarnir koma alltaf á óvart, hvað gerir þjóðlagadeild Sniglanna á þessum tónleikum? Miðvikudagur 10.mars klukkan 23:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
GÍSLI HELGASON & Co:Hafsteinn G. Guðfinnsson gítar, Þórólfur Guðnason bassi, Ársæll Másson gítar, Hilmar Sverrisson á harmoniku og Gísli Helgason flautur.Gísli er löngu landsþekktur fyrir sinn frábæra flautuleik og líklegt að hann láti gamminn geysa á sínum tónleikum. Gísli hefur gefið út 2 sólóplötur og komið við sögu á tugum platna í gegnum árin. Fimmtudag 11. mars klukkan 21:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
FEDOROV TRÍÓ: Vadim Fedorov harmonika. Gunnar Hilmarsson gítar og Leifur Gunnarsson kontrabassi. Vadim Fedorov takkaharmonikuleikari kom hingað til lands fyrir löngu síðan og lagði Íslendingum krafta sína í harmonikuleik. Þegar þeir bræður Yuri og Vadim Fedorov lögðu lið tónlistarsköpun og kennslu og var með því stigið stórt skef í íslenskum harmonikuleik. Vadim verður með sitt fína tríó og leikur tónlist frá öllum heimshornum. Miðvikudaginn 10. mars klukkan 22:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
VARSJÁRBANDALAGIÐ: Sigríður Ásta Árnadóttir harmonika og söngur. Karl Pestka fiðla og söngur. Magnús Pálsson klarinett og raddir.
Halldór Eldjárn trommur. Jón Torfi Arason trompet, gítar og söngur.
Hallur Guðmundsson bassi og söngur. Þessi sveit ber vitni þess að ungt fólk tekur við kyndlinum og heldur lifandi hljóðfæratónlist byggða á íslenskur arfi með alþjóðlegri balkan blöndu. Föstudaginn 12 . mars klukkan 22:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
RÓSIN OKKAR: Skarphéðinn Haraldsson 6 str, gítar, 12 str, gítar , bodhrán ( írsk tromma ) og söngur. Rósa Jóhannesdóttir fiðla, Harðangursfiðla, söngur , raddir. Ari Agnarsson harmónika, píanó , söngur, raddir . Kristján Kristmundsson g ítar, tinflauta, slagverk, söngur. Þjóðlagahljómsveitin Rósin okkar leikur þjóðlög úr ýmsum áttum: norsk, írsk, skosk og íslensk. Undanfarna mánuði hefur hljómsveitin getið sér gott orð fyrir líflegan tónlistarflutning víða um land. Miðvikudaginn 10. mars klukkan 21:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
KK:Kristján Kristjánsson, betur þekktur sem KK, hóf atvinnumennsku í tónlist árið 1985 þegar hann lagðist í götuspilamennsku víðsvegar um Evrópu eftir að hafa stundað 4 ára nám við Tónlistarháskólann í Malmö. Árið 1990 kom hann heim til Íslands og hefur síðan starfað við tónlist, hljóðritun á eigin lagasmíðum og annarra, leikhús, kvikmyndir og nú síðast sem dagskrárgerðarmaður hjá RÚV.
KK hefur tvisvar verið tilnefndur til Grímuverðlauna og hefur tvisvar fengið Íslensku tónlistarverðlaunin. Laugardagur 14. mars klukkan 22:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
GÆÐABLÓÐ: Magnús R. Einarsson gítar, Kormákur Bragason gítar og söngur, Tómas Tómasson bassi og söngur, Pálmi Sigurhjartarson píanó , Ásgeir Óskarsson trommur. Kormákur textaskáld og lagasmiður leiðir sína menn, sem allir eiga það sameiginlegt að vera úrvalshljóðfæraleikarar hver á sínu sviði. Hjá sveitinni er húmörinn ekki langt undan og sungið er um háa, sem lága. Ný plata er væntanleg með Gæðablóðum. Fimmtudag 11. mars klukkan 22:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
SPAÐAR: Guðmundur "Litli-Neisti" Ingólfsson bassi, Magnús "Lagabætir" Haraldsson gítar, söngur, Aðalgeir "Enginn-Asi" Arason mandólín, Guðmundur "Fiðlungur" Pálsson fiðla, Sigurður Valgeirsson trommur, Gunnar Helgi Kristinsson, harmonika og hljómborð, og Guðmundur Andri Thorsson, gítar, söngur. Spaðar er líklega elsta sveitin sem tekur þátt í hátíðinni og eru því einskonar heiðursgestir. Hópurinn hóf söng og spil sér til ánægju um 1980. Spaðar hafa gefið út snældur, hljómplötur og diska. Laugardaginn 13. mars klukkan 24:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
HRAFNAR: Hilmar Sverrisson harmonika og söngur, Hlöðver Guðnason gítar, söngur, Hermann Ingi Hermannsson gítar, söngur, Vignir Ólafsson banjó, söngur og Georg Ólafsson bassi, söngur. Hrafnar eru þjakaðir af reynslu og geta gripið til mörg hundruð laga af öllu tagi, bæði íslensk og erlend lög. Það er eitt af einkennum sveitarinnar að flytja lög sem öll alþýða manna þekkir, þó inn á milli komi þeir áheyrendum á óvart á ýmsan hátt. Fimmtudaginn 11. mars klukkan 23:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
NARODNA MUSIKA: Haukur Gröndal klarinett o.fl. Borislav Zgurovsky harmonika, Todor Vaseilev tamboura, Þorgrímur Jónsson kontrabassi, Erik Qvick slagverk. Haukur Gröndal, aðal hvatamaður og stofnandi þessarrar sveitar, hefur komið verulega á óvart og telst nú meðal flinkustu klarinettleikara Evrópu. Haukur kann sannarlega að nýta sér þjóðlagatónlistina til nýsköpunar og blandar saman íslenskum stefjum og búlgörskum þjóðlagahefðum. Plata með sveitinni kom út sl. vor. Föstudaginn 12 . mars klukkan 23:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.
SOUTH RIVER BAND: Helgi Þór Ingason harmonika/söngur, Ólafur Baldvin Sigurðsson mandólín/söngur, Matthías Stefánsson fiðla/gítar, Jón Ingólfsson kontrabassi/söngur, og Ólafur Þórðarson gítar og söngur. Þessi grasrótarsveit kemur upphaflega frá Ólafsfirði, stofnsett árið 2000 og heldur því upp á 10 ára afmæli sitt með því að halda hátíð og vekja athygli á þeim fjölmörgu, sem fást við tónlistarsköpun af þessu tagi. Föstudaginn 12 . mars klukkan 21:00 Stöðvið spilarann, áður en næsti er leikinn.