HOME

ENGLISH

ARTISTS

DAGSKRÁ 2011

LISTAMENN 2011

LISTAMENN 2010

UM REYKJAVÍK FOLK FESTIVAL

PHOTO

SPONSOR

HAFA SAMBAND/CONTACT

MENU (Special Festival Food)

Borðapantanir í síma:
551 2442

Kaffi Rósenberg
Klappatíg 25
101 Reykjavík

Miðar seldir á MIÐI.IS -

Reykjavík Folk Festival – tónlist fólksins - Um Reykjavik Folk Festival

 

 

 

Café Rosenberg 9. - 12. mars 2011

 

Reykjavík Folk festival 2010

Í tilefni af 10 ára afmæli South River Band 2010 vildu aðstendendur sveitarinnar, Söngkvöldafélagið í samvinnu við Tónsprotann ehf og Kaffi Rósenberg setja á stofn litla tónlistarhátíð, þar sem fram koma fjórtán sveitir af ýmsum toga, en eiga það sameiginlegt að flytja, þjóðlög, blús, heimstónlist og einskonar blöndu af þessu öllu.

Þjóðlagatónlist (e. folk music) hefur stundum verið skilgreind sem tónlist eða tónlistaráhrif sem rekja uppruna sinn til hins venjulega alþýðumanns og borist hefur mann frá manni, kynslóð frá kynslóð. Oftar en ekki má rekja þetta til þess að vinir eða fjölskyldan hafa komið saman, sungið og spilað af fingrum fram. Réttara væri því kannski að tala um alþýðutónlist.

Meðlimum hljómsveitarinnar South River Band hefur lengi fundist vanta tónlistarhátíð með þessa grasrót í forgrunni og hyggst hljómsveitin því blása til alþýðu- og heimstónlistarhátíðar í mars 2010 undir merkjum Reykjavík Folk Festival.

Með Reykjavík Folk Festival viljum við leggja áherslu spilagleðina fremur en að reyna að leggjast í djúpar rannsóknir á uppruna þjóðlagatónlistar. Þannig hyggjumst við ekki gera íslenskri alþýðu- og þjóðlagatónlist hærra undir höfði en alþýðutónlist annarra landa.

Við viljum setja upp hátíð að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Það var með þetta að leiðarljósi sem við ákváðum að blása til þessarar hátíðar með grasrótarhópum og höfum í góðu samstarfi við Þórð Pálmason veitingamann á Kaffi Rósenberg ákveðið að hún skuli haldin þar frá miðvikudegi 10. mars til sunnudags 14.mars 2010.

Samtals koma 14 sveitir fram á hátíðinni. Þrjár á miðvikudegi, þrjár á fimmtudegi, fjórar á föstudegi og fjórar á laugardegi. Hverju atriði er ætlaður 45 mínútna spilatími.

Allir tónleikarnir verða hljóðritaðir af Ríkisútvarpinu og gerðir verða 14 þættir sem sendir verða út í sumar. Við viljum sérstaklega þakka RÚV fyrir að treysta okkur. Dagskrá Rásar 1 er hið íslenska útvarp. Einnig viljum við þakka fyrir góða samvinnu við Endurmenntun Háskóla Íslands. Þar verður boðið upp á nýstárlegt námskeið í tengslum við Reykjavik Folk Festival undir yfirskriftinni "Handspiluð heimstónlist". Hér er um að ræða ferðalag um heim litríkrar tónlistar með myndum og tóndæmum frá ýmsum heimshornum. Sjá nánari upplýsingar á www.endurmenntun.is

Með bestu kveðjum og góða skemmtun.

South River Band

Vinsamlega hafið samband við REYKJAVIK FOLK FESTIVAL eða í síma: 698-1200

REYKJAVÍK FOLK FESTIVAL

 

 

Í samstarfi við:
Ríkisútvarpið

Tónlistarhátíðir
Vancover Folk Music Festival
Winnipeg Folk Festival
Edmonton Folk Music Festival
Sidmouth Folkweek
Folk and Roots
Fiddler's Green Festival
Orkney Folk Festival
Shetland Folk Festival

 

TOP
REYKJAVÍK FOLK FESTIVAL - SÖNGKVÖLDAFÉLAGIð - TÓNSPROTINN ehf. - KAFFI RÓSENBERG
Miši.is